Haustferðin var svakaleg. Hellingsmargt gerðist.

Síðan var ég víst klukkuð í einhverskonar bloggleik og ég lofaði að sinna því
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:-Blaðburðarstelpa í allt of mörg ár (ekki lengur samt)
-Olísafgreiðari
-Sjálfboðavinna á elliheimili í Costa Rica
-Rannsóknarmaður í Árnagarði.
Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:-Crash
-Snatch
-Fuksvansen (svooooo fyndin, allir að sjá hana ef þeir hafa ekki!!)
-Sódóma (maður gerir ekki neitt fyrir neinn sem gerir ekki neitt fyrir neinn)
Fjórir staðir sem ég hef búið á:-Blómvallagötu
-Nýlendugötu
-Reynimel (soldið mikill Vesturbæingur)
-Alajuela í Costa Rica
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:-How I met your mother
-Friends
-Arrested Development
-Little Britain
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:vó... soldið erfitt að velja svo þetta verður gróf upptalning
-Costa Rica uppáhalds uppáhaldið
-America del Sur (mesta ævintýrið)
-Ástralía og Nýja-Sjálan (svooo mikið gaman)
-Suðaustur-Asía, (Thailand var best

)
Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:
-Uglan
-Gmail
-Facebook
-Mbl
Fernt matarkyns sem ég held upp á:-Kjúklingur með bernaise er uppáhalds
-Skyr, jarðaber og banani hrist saman nammnammnamm (Gyða eiginhagsmunaseggur gaf mömmu sinni blandara í afmælisgjöf

)
-Kjallarabolla með hangikjöti og kókómalt
-Draumur og annað lakkrísnammi (er það matur?)
Fjórar bækur sem ég les oft:-Hef lesið ísfólkið allt of oft
-Harry Potter líka
-Síðan les ég múmínálfana svona 17 sinnum á dag þegar Kolla litla systurdóttir er í heimsókn
-Humm... ég les mikið en ekki sömu bækurnar aftur og aftur!
Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna:-Manuel Antonio (með fallegri stöðum í heimi, prufið bara að gúggla) með ískaldan drykk á ströndinni að kjafta við fólk og fylgjast með öpunum og öldunum.
-Trysil í Norge á skíðum
-Í kósý í sófanum mínum með góða bók og stjörnupopp
-Á bókhlöðunni að gera fornamálsverkefni (Gyða slugsi) og þangað ætla ég að fara núna!
Sko... ég veit ekkert hvern ég á að klukka, má ekki sleppa því bara?

Farin á bókhlöðuna...