Jæja... Nú munið þið dyggu lesendur mínir (sirka 5 talsins ekki
satt?) Detta afturábak úr litlu svörtu skrifborðsstólunum
ykkar! Mexíkóferðinni umtöluðu hefur nánast verið aflýst. Í
dag frétti ég, ekki frá neinum úr fimmtubekkjarráði
heldur Nonna, að endurkosningar yrðu haldnar og að ekki
væri einu sinni víst að Mexico yrði hafður sem valmöguleiki. Miði
með þessum upplýsingum gekk víst í bekknum hans í
dag. Jahérna! Ég flýtti mér auðvitað strax og sendi félögum
mínum í 5.bekkjarráði e-mail til að furða mig á þessum miskilningi
sem hlyti að hafa átt sér stað. Því varla væru svona mikilvægar
ákvarðanir innan ráðsins teknar án þess að fulltrúar allra bekkja
væru viðstaddir, eða þeir hafði með í ráðum?? Ég fékk svar frá
þeim innan skamms þar sem ég var ávörpuð sem karlmaður
og fékk staðfest að þetta hefði bara víst átt sér stað. Ég
hringdi þá í formann 5.bekkjarráðs sem staðfesti þetta
allt saman. Ég spurði þá hvort að við værum líka búin að fá ný
tilboð í útskriftarferð. Hann svaraði því játandi, við værum búin
að fá tilboð til Tælands upp á 110.000 kr. Ég ætla ekki að
vera með neinn skítamóral hérna, en ég hef allavega ekki samvisku í
mér til að fara og djamma eins og aldrei fyrr í landi þar sem
ríkir þjóðarsorg. Tæland fær ekki mitt atkvæði. Svo er ég líka
búin að heyra að nemandi í 5. bekk, óháður
5.bekkjarráði, sé búin að fá tilboð um ferð til Tyrklands
á 170.000
Allt í lagi. Endurkosningar eru kannski ein leið til að athuga
púlsinn hjá fólki og hvort að það sé búið að skipta um skoðun
varðandi val sitt. Þetta er samt stór ákvörðun þar sem 76%
fimmtubekkinga kusu þessa Mexíkóferð á sínum tíma og hefði ég
haldið að allir bekkjarráðsmenn ættu að hafa sitt að segja um hvort
ætti að aflýsa umræddri ferð. Það voru meira að segja tveir
bekkjarráðsmenn veikir heima í dag.
Kannski er ég bara svekkt yfir því að sitja ein veik heima.
Kannski er ég bara svekkt yfir því að komast ekki til Mexikó.
Kannski var þetta pínulítið leim hjá 5.bekkjarráði. Kannski er ég
bara með óráði!
Ég get ekki dæmt um það. Ég er enginn dómari. Ég hvet alla
dómara til að commenta á þessa færslu og dæma um þetta mál. Að
lokum vona ég að ég hafi ekki sært neinn með þessum orðum því
það var ekki ætlunin!
Adios mexico! 